Aktín
Lantan | |||||||||||||||||||||||||
Radín | Aktín | Þórín | |||||||||||||||||||||||
|
Aktín er geislavirkur málmur með efnatáknið Ac. Þýski efnafræðingurinn Friedrich Oskar Giesel uppgötvaði hann árið 1902 og nefndi hann emanium. Efnið var ranglega talið vera það sama og André-Louis Debierne uppgötvaði árið 1899 og kallaði actinium.[1][2] Aktíníð, röð 15 frumefna milli aktíns og lawrensíns í lotukerfinu, draga nafn sitt af aktíni. Ásamt póloni, radíni og radoni, var aktín eitt af fyrstu frumefnunum sem var uppgötvað sem myndast við náttúrulegt niðurbrot annarra geislavirkra efna.
Aktín er mjúkur silfurhvítur og geislavirkur málmur. Aktín binst auðveldlega súrefni og raka í andrúmsloftinu og myndar mjúka hvíta oxíðfilmu sem hindrar frekari oxun. Líkt og flest lantaníð og mörg aktiníð fær aktín oxunartöluna +3 í næstum öllum efnasamböndum. Það kemur eingöngu fyrir í bergi með úrani og þóríni sem samsætan 227Ac með 21,772 ára helmingunartíma sem gefur frá sér betaeindir og stundum alfaeindir, og sem 228Ac með 6,15 tíma helmingunartíma. Eitt tonn af náttúrulegu úrani inniheldur um 0,2 milligrömm af 227Ac og eitt tonn af þóríni inniheldur um 5 nanógrömm af 228Ac. Vegna þess hve aktín líkist lantani er ekki fýsilegt að vinna það úr bergi. Þess í stað er það búið til með niðurbroti radíns í kjarnaofni. Aktín er sjaldgæft, dýrt og geislavirkt, svo það er ekki hagnýtt í stórum stíl. Það er aðallega notað sem uppspretta nifteinda og í geislameðferðir.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Giesel, Friedrich Oskar (1904). „Ueber Emanium“. Berichte der Deutschen Chemischen Gesellschaft (þýska). 37 (2): 1696–1699. doi:10.1002/cber.19040370280.
- ↑ Giesel, Friedrich Oskar (1905). „Ueber Emanium“. Berichte der Deutschen Chemischen Gesellschaft (þýska). 38 (1): 775–778. doi:10.1002/cber.190503801130.
- ↑ Deblonde, Gauthier J.-P.; Abergel, Rebecca J. (21 október 2016). „Active actinium“. Nature Chemistry (enska). 8 (11): 1084. Bibcode:2016NatCh...8.1084D. doi:10.1038/nchem.2653. ISSN 1755-4349. OSTI 1458479. PMID 27768109.